Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Nýr Landspítali skrifar undir samning við Staticus á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna

Nýr Landspítali skrifar undir samning við Staticus á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna

281
0
Frá samningsundirskrift: Bergþóra Smáradóttir verkefnastjóri á framkvæmdasviði Nýs Landspítala, Aušra Vankevičiūtė Staticus, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Kristín Gestsdóttir verkefnastjóri innkaupaferlis.

Í dag undirritaði heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, samning Nýs Landspítala ohf. við litháenska útveggjaverktakann Staticus um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna. 

<>

Um er að ræða eitt stærsta fjárfestingaverkefni meðferðarkjarnans. Samningurinn er afrakstur 15 mánaða samkeppnisútboðsferlis og það lengsta sem Nýr Landspítali hefur komið að. 

Vinnuhópur frá Nýjum Landspítala, Corpus, sem eru hönnuðir spítalans, Buro Happold Engineering, Bird & Bird, Lex lögmönnum og Ríkiskaupum komu að gagnagerð og samkeppnisviðræðum.

Staticus fékk þar hæstu einkunn úr matslíkani og verði. Um er að ræða fullnaðarhönnun, framleiðslu, flutning og uppsetningu útveggja. Samningurinn hljóðar upp á 47 milljónir evra þar sem uppsetningartíminn er áætlaður um 14 mánuðir og hefst í september 2023.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: „Þjóðin hefur beðið lengi eftir því að sjá nýja meðferðarkjarna Landspítalans rísa hér við Hringbraut. Meðferðarkjarninn er gríðarstórt hús. Til að setja það í samhengi þá er framkvæmdin við að reisa útveggina ekki aðeins sú stærsta innan Hringbrautarverkefnisins heldur líka stærsta einstaka framkvæmd sem ríkið ræðst í á árinu 2023. Það eru því spennandi tímar fram undan fyrir Landspítalann og heilbrigðiskerfið í heild,”.

 

Ásbjörn Jónsson sviðsstjóri framkvæmdasviðs Nýs Landspítala ohf.: „Í dag er stór dagur hjá Nýjum Landspítala þar sem skrifað var undir einn stærsta framkvæmdasamning Nýs Landspítala frá upphafi vegna byggingar á nýjum meðferðarkjarna.  Um er að ræða mjög stóran og viðamikinn samning við Staticus vegna útveggja á nýja meðferðakjarnann.

Ég tel að Staticus hafi þá reynslu og sérfræðiþekkingu til að takast á við þetta risastóra verkefni. Umfang verkefnisins eru um 30.000 m²  útveggir á bygginguna. Uppsetningin mun fara fram frá september 2023 og eru áætluð verklok í nóvember 2024. Við hjá Nýjum Landspítala höfum undirbúið verkið vel og erum full tilhlökkunar fyrir samstarfinu við Staticus og við þetta flókna verkefni,”.

Aušra Vankevičiūtė Staticus: „Sem alþjóðlegur verktaki erum við alltaf ákaflega stolt af því að taka þátt í verkefnum sem eru mikilvæg fyrir þau samfélög sem við vinnum með.

Verkefni Landspitala er mjög flókið verkefni þar sem við höfum þurft að horfa til þátta varðandi forsendur sem tengjast loftslagsáskorunum, flutningum og uppsetningu og hvað stærð samnings snertir er verkefnið það stærsta í sögu Staticus.

Við erum ótrúlega stolt af því að geta sýnt fram á að Staticus hafi nauðsynlega tæknilega sérfræðiþekkingu og hæfileika til að framkvæma svona stórt og flókið verkefni. Við hlökkum til að halda áfram góðu samstarfi við Nýjan Landspítala og erum fús og tilbúin að skila okkar besta hvað varðar sérfræðiþekkingu, gæði, sjálfbærni og nákvæmni,”.

Um meðferðarkjarnann:

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin í uppbyggingu Nýs Landspítala og mun gegna lykilhlutverki í megin meðferðarstarfsemi spítalans. Meðferðarkjarninn er hannaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga og annarra bygginga.

Þar verður bráðamóttaka, gjörgæsla, skurðstofur, hjarta- og æðaþræðingar og myndgreining ásamt legudeildum og annarri stoðþjónustu svo sem dauðhreinsun og apótek fyrir sjúkrahúsið. Heilbrigðisstarfsemi í meðferðarkjarna mun þannig vera hluti af annarri starfsemi í þeim húsum sem þegar eru til staðar á Hringbrautarlóð.

Um Staticus:

Staticus er eitt stærsta fyrirtæki í Evrópu á sviði útveggjaframleiðslu með mikla sérfræðiþekkingu á sviði arkitektúr og verkfræði. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 starfsmenn um allan heim og eru með skrifstofur í  Vilnius, Ósló, Stokkhólmi, Vín, Basel og London. Fyrirtækið hefur unnið að sambærilegum verkefnum við sjúkrahús í Osló, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.

Heimild: NLSH ohf.