Home Fréttir Í fréttum 04.10.2022 Stekkjaskóli 2. áfangi – byggingastjóri og framkvæmdaeftirlit

04.10.2022 Stekkjaskóli 2. áfangi – byggingastjóri og framkvæmdaeftirlit

318
0
Stekkjaskóli á Selfossi. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Fasteignafélag Árborgar slf óskar eftir tilboðum í: „Stekkjaskóli 2. áfangi – byggingastjóri og framkvæmdaeftirlit“

<>

Verkið felur í sér að taka að sér hlutverk byggingastjóra og framkvæmdaeftirlits vegna  rúmlega 3700 fermetra byggingar 2. áfanga Stekkjaskóla á Selfossi.

Verkið felst í byggingastjórnun og framkvæmdareftirliti á áframhaldandi uppbyggingu Stekkjaskóla í Björkurstykki á Selfossi, 2. áfangi.

Byrjað er að reisa fyrsta áfanga skólabyggingarinnar og er stefnt að því að taka byggingu 1. áfanga í notkun í lok árs 2022. Þá er einnig lokið við smíði og uppsetningu á færanlegum skólastofum grunnskólans.

Verkefnið, Stekkjaskóli í Björkurstykki, 2. áfangi, skiptist í fullnaðarhönnun og byggingu 2. áfanga skólans.

Verktími:   Október 2022 til lok júlí 2024

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

https://arborg.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/774a6dea-d409-4ca1-abc3-090226e50c32

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboða er til kl. 11:00 þriðjudaginn 4. október 2022

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Fasteignafélag Árborgar slf