Home Fréttir Í fréttum Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn

Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn

150
0
Ámundi Rúnar Sveinsson er verkstjóri hjá Skagfirskum verktökum ehf. SIGURJÓN ÓLASON

Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 voru framkvæmdir skoðaðar. Þetta verður aðalleiðin milli Blönduóss og Skagastrandar en einnig hluti Þverárfjallsvegar til Sauðárkróks. Skagfirskir verktakar fengu verkið sem lægstbjóðendur fyrir 1.496 milljónir króna.

„Það hefur gengið bara mjög vel. Þetta er efnisflutningur upp á tæpa 400 þúsund rúmmetra. Og við erum bara vel á áætlun með vegagerðina,“ segir Ámundi Rúnar Sveinsson, verkstjóri hjá Skagfirskum verktökum ehf.

Frá vegagerðinni í Refasveit.
SIGURJÓN ÓLASON

Þeir eru með 25 manna hóp í vinnu, hafa sex búkollur, fimm gröfur og þrjár jarðýtur. Nýr vegarkafli frá Blönduósi að núverandi Þverárfjallsvegi verður átta kílómetra langur, nýr kafli Skagastrandarvegar þriggja kílómetra langur en einnig verða lagðar heimreiðar að sveitabæjum upp á fjóra kílómetra.

„Já, þetta er stærsta verk sem við höfum tekið að okkur. Við erum verktakar úr Skagafirði, nokkrir saman, sem tókum okkur saman til þess að geta tekið þessi stóru verk.“

Gatnamót nýja vegarins og hringvegarins verða rétt norðan Blönduóss.
SIGURJÓN ÓLASON

-Nú eruð þið að vinna í Húnaþingi. Það hefur oft verið rígur á milli Húnvetninga og Skagfirðinga. Eru Húnvetningar ekkert ósáttir við að Skagfirðingar skuli vera að gera þetta?

„Nei, nei, nei. Alls ekki. Við reynum að hafa nokkra Húnvetninga með okkur til að halda friðinn, bæði frá Blönduósi og Skagaströnd, og það gengur bara vel.“

-En þið þurfið að gera það til að halda friðinn, eða hvað?

„Ja.. við getum orðað það þannig,“ svarar Ámundi Rúnar og hlær.

Frá brúarsmíðinni yfir Laxá í Refasveit. Nýja brúin leysir af einbreiða brú á þjóðveginum.
SIGURJÓN ÓLASON

Helmingur mannskaparsins smíðar nýja brú yfir Laxá í Refasveit, sem telst um þriðjungur heildarverksins. VA-verktakar á Akureyri annast brúarsmíðina sem undirverktakar. Brúin verður stærðar mannvirki, 106 metra löng og hæð brúargólfsins yfir ánni á við fimm hæða hús.

Heima í héraði fagna menn því að losna við gamla veginn, þótt hann sé lagður bundnu slitlagi.

„Gamli vegurinn þolir engan veginn þá flutninga og umferð sem um hann er í dag. Þannig að þetta er bara brýn samgöngubót,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar.

Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar, með Blönduós í baksýn.
SIGURJÓN ÓLASON

Ámundi Rúnar segir nýja vegstæðið mikið betra og snjóléttara.

„Styttir og gerir okkar leiðir innan þessa svæðis hér öruggari,“ segir Guðmundur Haukur.

Verklok eru áætluð 1. nóvember 2023. Verktakarnir vonast þó til að hægt verði að hleypa umferð á að minnsta kosti hluta vegarins fyrir verslunarmannahelgi á næsta ári.

Heimild: Visir.is