Home Fréttir Í fréttum 05.10.2022 Vetrarþjónusta stofnanalóða í Reykjavík 2022-2025

05.10.2022 Vetrarþjónusta stofnanalóða í Reykjavík 2022-2025

242
0
Mynd: Reykjavík.is

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Vetrarþjónusta stofnanalóða í Reykjavík 2022-2025, útboð nr. 15623.

Um er að ræða snjóhreinsun í þrjá vetur, þ.e. veturna 2022-2023, 2023-2024 og 2024-2025. Um er að ræða snjóhreinsun bílastæða innan stofnanalóða í Reykjavík.

Helstu magntölur:

  • Útboðssvæði 1        – 30.934m2
  • Útboðssvæði 2        – 50.797m2
  • Útboðssvæði 3        – 56.633m2
  • Útboðssvæði 4        – 53.674m2

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl.09:00, mánudaginn 5. september, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. október 2022.