Home Fréttir Í fréttum 20.09.2022 Borgargata í Árbæ – Verkhönnun

20.09.2022 Borgargata í Árbæ – Verkhönnun

231
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Borgargata í Árbæ – Verkhönnun, útboð nr. 15652

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í verkhönnun á borgargötu í Árbæ með torgi, strætóstöðvum, hjóla- og gönguleiðum ásamt hraðalækkandi aðgerðum sem og gerð útboðsgagna fyrir framkvæmd og framkvæmdaeftirlit.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 5. september  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 20. september  2022.