VEV-2022-11 Strandgata 26-30 – Færsla lagna
Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í „Strandgata 26-30 – Færsla lagna“ í samræmi við útboðsgögn.
Verkið felst í lagningu hitaveitulagna í miðbæ Hafnarfjarðar. Vegna nýbyggingar á Strandgötu 26-30 þarf að leggja nýja hitaveitulögn að Strangötu 32 og 34 og Fjarðargötu 17 og 19. Tengt verður við núverandi hitaveitulögn í Austurgötu og ný lögn lögð eftir Mjósundi, yfir Strandgötu og að Fjarðargötu.
Um er að ræða upprif á núverandi yfirborði og endurgerð ásamt jarðvinnu og lagnavinnu.
Útboðsgögn afhent: | 05.08.2022 kl. 14:00 |
Skilafrestur | 25.08.2022 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 25.08.2022 kl. 14:00 |
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.