Home Fréttir Í fréttum Fjallaböðin á lokastigi hönnunar

Fjallaböðin á lokastigi hönnunar

297
0
Teikning af fjallaböðunum frá Basalt arkitektum. BASALT ARKITEKTAR

Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum.

<>

Fjallaböðin er nafnið á nýjum baðstað og 40 herbergja hóteli í Þjórsárdal, alls 5000 fermetra bygging, sem til stendur að opna eftir þrjú ár. Byrjað var á verkefninu árið 2015 en er nú loks á lokastigi hönnunar, framkvæmdir fram undan og allt fullfjármagnað, en á bak við Fjallaböðin eru að stærstum hluta fyrirtækið Rauðukambar, Íslenskar heilsulindir, sem reka meðal annars Bláa lónið, og tveir sjóðir í eigu íslenskra lífeyrissjóða. Allt í kringum Fjallaböðin er unnið á sem umhverfisvænstan hátt.

„Þjórsárdalurinn á það skilið að horft sé til umhverfisþátta í hvívetna í öllu sem þar er gert. Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að byggja á umhverfisvænan hátt og hugsa allt sem heild. Við förum með byggingarnar í gegnum svokallaða Breeam vottun sem er staðall sem allar helstu byggingar eru byggðar eftir í dag.

Og við stefnum að því að skora mjög hátt þar, þannig að þetta verði með umhverfisvænstu byggingum í Evrópu. Svo er einnig horft til þess að allir gestirnir sem koma að baðstaðnum eða hótelinu leggi bílum sínum við mynni dalsins og þannig minnkum við mikið álagið á dalnum sjálfum,“ segir Magnús Orri Marínarsonur Schram, framkvæmdastjóri.

Fólk verður svo ferjað á rafmagns – eða vetnisdrifnum bílum að baðstaðnum og hótelinu.

„Við erum að reyna að aðlaga hið manngerða að náttúrunni og erum til dæmis að byggja að miklu leyti inn í fjallið, kannski verða um 60 – 70 prósent falin. En um leið verður upplifunin einstök þar sem þú gengur inn í fjallið og ert svo að upplifa heita laug að einhverju leyti inni í fjallinu, en svo er gengið út úr byggingunni út í baðlónið og horft til suðurs eftir dalnum. Ég held að þetta geti orðið einstök upplifun.“

Hekla, virkasta eldfjall Íslands, er í næsta nágrenni við Fjallaböðin, en Magnús Orri hefur ekki áhyggjur af hugsanlegu eldgosi.

„Nei, í raun og veru virkar þetta þannig að við munum byggja húsin og setja svo efnið aftur ofan á húsin og þannig fela bygginguna. Það myndi bara bæta ofan á ef Hekla myndi gjósa og dreifa ösku yfir svæðið.“

Samhliða þessu er áformuð mikil uppbygging í Þjórsárdalnum, merking gönguleiða, áfangastaða og reiðleiða, auk þess sem stefnt er að því að byggja heilt þorp í Árnesi fyrir starfsmenn.

Heimild: Visir.is