VEV-2022-07 Gvendarbrunnar-Endurbætur þaka
Verkkaupi óskar eftir tilboðum í verkið “Gvendarbrunnar-Endurbætur þaka” í samræmi við útboðsgögn.
Verkið felst í endurnýjun á núverandi þakyfirborði Gvendarbrunnahúss ásamt viðgerðum á yfirborði, auk nýrra regnvatnslagna með útveggjum.
Þá er í þessu verki einnig útskipti á þakglugga sem þverar mannvirkið fyrir miðju. Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.
Útboðsgögn afhent: | 07.07.2022 kl. 11:00 |
Skilafrestur | 15.08.2022 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 15.08.2022 kl. 14:00 |
Kynningarfundur verður haldinn fyrir verkefnið á verkstað kl. 10:00 þann 15. júlí 2022. Sjá nánari upplýsingar í grein 1.1.5 útboðsgagna.