Verkið felur í sér framlengingu Álfabakka með göngu- og hjólastíg til suðurs um u.þ.b. 350m ásamt tilheyrandi lögnum. Meðfram núverandi Álfabakka frá Árskógum verður jarðvegsskipt og undirbyggt fyrir hjóla- og göngustíg. Hjóla- og göngustígur liggur svo áfram til suðurs (um 140m) og tengist núverandi stígakerfi í Kópavogi. Gera skal u.þ.b. 480m göngustíg á lóðmörkum Íþróttafélags Reykjavíkur og húsa við Þverársel.
Verkið felur einnig í sér endurmótun núverandi miðlunartjarnar ofanvatns við Álfabakka þar sem auka skal rúmmál tjarnarinnar í 12 þúsund rúmmetra.
Leggja skal hitaveitulagnir og lagnir fyrir kalt neysluvatn frá Árskógum og meðfram Álfabakka u.þ.b. 650 m lengd.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur og uppúrtekt 34.000 m3
- Fyllingar 33.000 m3
- Malbikun 7.300 m2
- Fráveita 355 m
- Hitaveita 1.300 m
- Vatnsveita 1.050 m
- Raflagnir 1.900 m
- Ljósastaurar 44 stk
Lokaskiladagur verksins er 30.06.2023.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl.10:00, þriðjudaginn 5. júlí n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 26. júlí 2022.