F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi :
Rennibrautir við Dalslaug, EES útboð nr. 14866
Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar f.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í vatnsrennibrautir fyrir nýja sundlaug í Úlfarsárdal. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.
Áætluð verklok eru 30. janúar 2023
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:30, 30. júní 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 9. ágúst 2022.