Home Fréttir Í fréttum 14.07.2022 Breiðholtsskóli – Endurgerð lóðar 2022, 3.áfangi

14.07.2022 Breiðholtsskóli – Endurgerð lóðar 2022, 3.áfangi

121
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Breiðholtsskóli –  Endurgerð lóðar 2022, 3.áfangi, útboð nr. 15508

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið snýr að 3.áfanga í endurgerð lóðar Breiðholtsskóla við Arnarbakka 1-3, 109 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á suð-vestur hluta skólalóðar en það svæði er samtals u.þ.b 2100 m² að stærð.

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Áætluð verklok: 30. september 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 28. júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 14. júlí 2022.