Home Fréttir Í fréttum Minjastofnun segir Landstólpa hafa frá upphafi mátt vera ljóst hver kostnaðurinn yrði

Minjastofnun segir Landstólpa hafa frá upphafi mátt vera ljóst hver kostnaðurinn yrði

61
0

Minjastofnun segir að þróunarfyrirtækinu Landstólpa hafi frá upphafi mátt vera ljóst af fyrirliggjandi gögnum hver kostnaður af flutningi verndaðra minja við Reykjavíkurhöfn yrði. Fyrirtækið lýsti því yfir í dag að það hygðist krefja ríkissjóð um bætur en áætlaður kostnaður við verkið er hálfur milljarður króna.

<>

Í tilkynningu frá Minjastofnun segir að Landstólpa hefði mátt vera ljóst að í ljós kæmu menningarminjar sem verðskulduðu vernd, hvort sem hún félli beint undir ákvæði laga um menningarminjar eða þarfnaðist sérstakrar ákvörðunar um vernd samkvæmd lögum. „Getur hann því ekki hafa talist eiga lögmætar væntingar um að geta byggt á lóðinni án þess að þar kæmu í ljós menningarminjar sem kynnu að verða verndaðar samkvæmt heimildum laga um það efni,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt að í samkomulagi þeirra sem gert hafi verið 25.nóvember sé Landstólpum veitt heimild til að taka niður tímabundið hafnargarða á lóð Austurbakka í Reykjavík og endurhlaða þá samkvæmt skilyrðum sem tilgreind séu í samkomulaginu. Í því sé ekki að finna nein ákvæði um að kostnaður falli á ríkið vegna niðurtektar, flutnings, varðveislu og endurbyggingar garðanna.

„Kostnaður ríkisins af samkomulaginu er því enginn að undanskildum launakostnaði starfsmanna Minjastofnunar við eftirlit með verkefninu.“

Heimild: Vísir.is