Útboð á 1.áfanga nýbyggingar ásamt færslu veitulagna
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið Reiðhöll Sörla – Nýbygging – 1. áfangi ásamt færslu veitulagna. Um rafrænt útboð er að ræða og skal tilboðum skilað í gegnum rafræna útboðskerfið Ajour.
Nálgast má alútboðsgögnin á slóðinni: https://vsb.ajoursystem.is frá og með kl. 11:00 mánudaginn 13. júní 2022. Skil á tilboðum á útboðsvef skulu vera eigi síðar en kl. 11:00 þriðjudaginn 19. júlí 2022.
Upphaf framkvæmda er 15. september 2022 og verklok 1. júní 2024.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
- Uppgröftur á lausum jarðvegi 7.000 m3
- Losun klappar 900 m3
- Fyllingar 14.800 m3
- Mótasmíði 5.600 m2
- Bendistál 105 tonn
- Steinsteypa 1.225 m3
- Stálvirki 201 tonn
- Lagna- og loftræsikerfi
- Frágangur innanhúss
- Frágangur utanhúss
- Færsla veitulagna 1.560 m