Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin.
Fjallað var um verkefnið í fréttum Stöðvar 2 en það var í aprílmánuði í fyrra, fyrir rúmu ári, sem verktakinn Suðurverk hóf þverun Þorskafjarðar. Það er þó fyrst núna sem hin eiginlega brúarsmíði er komin á fulla ferð.
Þegar fyllingin undir brúarstæðið var orðin þétt mætti flokkur Vegagerðarinnar á svæðið til að reka niður staura og verktakinn Árni Helgason á Ólafsfirði sá um að girða stöplastæðin af með stálþili. Smíðaflokkur frá Eykt mætti svo í febrúar til að smíða brúarstöplana.
„Þrír stöplar komnir niður af sjö. Þannig að þetta potast,“ segir Einar Valur Valgarðsson, verkstjóri Suðurverks í þessu 2,2 milljarða króna verki.
„Við stefnum að því að ljúka brúargólfinu í haust, fyrir næsta vetur. Þannig að þá erum við á grænni grein með framhaldið.“
Þá verður unnt að moka undan 260 metra langri brúnni, hleypa firðinum undir og síðan tengja brúna við landið vestanmegin.
„Þetta fer náttúrulega allt eftir veðrum. Og hér getur verið mjög illviðrasamt hér niður við sjóinn, norðanfræsingur og rok, þó að það sé allt annað veður hér ofar í landinu.“
Starfsmenn eru núna tæplega tuttugu talsins en fjölgar þegar brúarsmíðin nær hámarki.
„Þegar hefst vinna í brúargólfinu, þá fjölgum við smiðum og keyrum þetta áfram. Hér er ekkert stoppað. Hér er bara unnið alla daga.“
Og ekki væsir um mannskapinn því Suðurverk hefur leigt Hótel Bjarkalund undir vinnubúðir en á meðan er það ekki rekið sem hótel fyrir ferðamenn.
„Nei, það verður lokað alveg. Við verðum með það meðan á þessu verki stendur.“
Einar segir verkið nokkurn veginn á áætlun.
„Það er í júnílok 2024 sem verktíminn á að vera búinn. Þannig að þá geta landsmenn og aðrir keyrt hér yfir. Og svo áframhaldið í Teigsskóginum, sem verið er að byrja á núna,“ segir Einar Valur hjá Suðurverki.
Heimild:Visir.is