Home Fréttir Í fréttum 22.06.2022 Austurheiðar útivistarsvæði 2022 – Áfangi 1

22.06.2022 Austurheiðar útivistarsvæði 2022 – Áfangi 1

123
0
mynd/Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Austurheiðar útivistarsvæði 2022 – Áfangi 1, útboð nr. 15576

Lauslegt yfirlit yfir verkið 
Verkið felst í framkvæmdum á útivistarsvæði Austurheiða við Lyngdal og Pardísarskál ásamt lagfæringum á stígum.

Helstu verkliðir eru jarðvinna, timburvirki, stígagerð, þökulögn, leiktæki og búnaður.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur                                               345 m3
  • Fylling                                                517 m3
  • Skógarskýli                                            1 stk.
  • Ruslaskýli                                              2 stk.
  • Malbiksfræs sem yfirborðsefni              250 m2
  • Endurnýting staðargróðurs                  550 m2
  • Þökulögn                                           210 m2
  • Leitkæki og búnaður                            24 stk.

Áætluð verklok: 31. október 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 7. júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 22. júní 2022.