Home Fréttir Í fréttum Opnun skólphreinsistöðvar í Bergen – Noregi

Opnun skólphreinsistöðvar í Bergen – Noregi

116
0
Mynd: Verkís

Verkís hefur unnið að stækkun og endurbyggingu á þremur helstu skólphreinsistöðvum í Bergen frá árinu 2012.

<>

Ein þeirra sem er staðsett í Kvernevik í austurhluta byggðarinnar var formlega opnuð  þann 4. desember síðastliðinn, þar sem starfsmönnum sveitarfélagsins, verktakar, hönnuðir og eftirlitsaðilar var boðið að skoða stöðina.

Starfsmenn Verkís sem hafa komið að verkefninu í Bergen

Verkís annast eftirlit, byggiMngastjórn og samræmingu öryggis- og heilbrigðismála.

Stærðir:

Ytre Sandviken: 2.300 m3
Kvernevik: 5.600 m3
Flesland: 9.000 m3
Verktími: 2012 –
Almennt um verkefnið:
Frá árinu 2012 hefur verið unnið við að stækka og endurbyggja fjórar af helstu skólphreinsistöðvunum í Bergen, en þær eru í Ytre Sandviken nærri miðbænum, í Kvernevik í austurhluta byggðarinnar, við Flesland í vesturhluta byggðarinnar og í Holen sem er í norðvesturhluta byggðarinnar. Hreinsistöðvarnar munu eftir breytingar geta hreinsað skólp frá um 370.000 manns ásamt verslun, þjónustu og iðnaði. Heildarkostnaður er áætlaður 1,5 milljarðar NOK (24 milljarðar ISK). Allar stöðvarnar eru staðsettar inni í berghvelfingum.

Auk endurbyggingu hreinsistöðvanna verður byggð biogasstöð i Rådalen í vesturhluta byggðarinnar, sem taka mun við úrgangi (slammi) frá öllum stöðvunum. Verkís er með eftirlit, byggingastjórn og samræmingu öryggis- og heilbrigðismála með 3 stöðvum, í Ytre Sandviken, Kvernevik og Fleslandi ásamt þjónustubyggingum í Kvernevik og Fleslandi. Framkvæmdum er lokið við hreinsistöðina í Ytre Sandviken. Gangsetning og prufukeyrsla hófst haustið 2014 og er stöðin komin í fullan rekstur.

Í Kvernevik er vinnu við uppsteypu að mestu lokið. Vinna við uppsetningu hreinsibúnaðar, lagna, loftræsingu og raflagna er langt komin. Gert er ráð fyrir að allri vinnu verði að mestu lokið haustið 2015 og í framhaldi af því hefst gangsetning og prufukeyrsla á stöðinni. Í Fleslandi er unnið við uppsteypu inni í hreinsistöðinni. Aðrir verktakar, sem sjá um uppsetningu hreinsibúnaðar, vinnu við lagnir, loftræsingu og raflagnir, byrja fljótlega að vinna í stöðinni. Áætlað er að í lok ársins 2016 verði þessari vinnu að mestu lokið. Gangsetning og prufukeyrsla er áætluð um áramótin 2016/2017.

Í Kvernevik og Fleslandi er einnig unnið við byggingu þjónustubygginga vegna hreinsistöðvanna, 500 m2 bygging í Kvernevik og 650 m2 í Fleslandi. Þjónustubyggingin í Fleslandi hefur verið tekin í notkun og verið er að ljúka við bygginguna í Kvernevik.