Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið ,,Urriðaholt Knattspyrnuvöllur – Gervigras”
Verkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi á gervigrasi og búnaði fyrir nýjan knattspyrnuvöll í Urriðaholti sem er í framkvæmd skv. útboðinu ,,Urriðaholt – Útivistar- og íþróttsvæði – Knattspyrnuvöllur – Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir”
Helstu magntölur eru:
- Gervigras: 2.992 m2
- Mörk og hornfánar
Lokaskiladagur verksins er 29. júlí 2022.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar https://vso.ajoursystem.is/ frá og með 17. maí 2022.
Tilboð skulu hafa borist rafrænt á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar, eigi síðar en þriðjudaginn 31. maí 2022 kl. 14:00, þar sem þau verða opnuð.
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar