Home Fréttir Í fréttum 02.06.2022 Siglufjörður. Endurnýjun Álalækjaryfirfallslagnar

02.06.2022 Siglufjörður. Endurnýjun Álalækjaryfirfallslagnar

202
0
Mynd:Ingvar Erlingsson - RÚV

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á yfirfallslögn Álalækjar á Siglufirði.

<>

Rjúfa þarf núverandi yfirborðsfrágang og grafa fyrir og leggja nýja yfirfallslögn frá dælubrunni við efri enda Gránugötu að smábátahöfn.

Nýja lögnin tengist við núverandi lagnakerfi norðan dælubrunns og kemur í stað núverandi Álalækjarræsis sem leggst af.

Verktími er frá 15 september 2022 til 30 nóvember 2022.

Hægt er að nálgast útboðsgögn rafrænt á netfangið armann@fjallabyggd.is

Tilboði skal skila á skrifstofu Fjallabyggðar Gránugötu 24, Siglufirði, í lokuðu umslagi sem sýni nafn bjóðanda, merktu:

“Siglufjörður, Álalækjaryfirfall”

Opnunartími tilboða: Fimmtudaginn 2. júní 2022 kl. 14:00 á skrifstofu Fjallabyggðar.