Home Fréttir Í fréttum Ætla að byggja há­tækni­fisk­vinnslu­hús fyrir eldis­fisk á Pat­reks­firði

Ætla að byggja há­tækni­fisk­vinnslu­hús fyrir eldis­fisk á Pat­reks­firði

165
0
Teikning af fiskvinnslunni sem fyrirhugað er að byggja á Patreksfirði. ARNARLAX

Arnarlax og Vesturbyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð. Áætlað er að um 100 störf skapist með nýju fiskvinnslunni og gert ráð fyrir að hægt verði að vinna allt að 80 þúsund tonn af eldisfiski í húsinu.

<>

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arnarlaxi. Þar segir að stefnt sé að því að nýja fiskvinnslan verði allt 10 þúsund fermetrar og verði byggð á lóð í eigu Vesturbyggðar.

Viljayfirlýsingin sé þá bundin því að samningar náist og allar forsendur standist. Í viljayfirlýsingunni er jafnframt mælt fyrir um flutning á móttökusvæði fyrir úrgang og kveðið á um uppbyggingu stórskipakants við Patrekshöfn.

Arnarlax hyggst reisa húsið á Vatnseyri á Patreksfirði en ekki liggur enn fyrir hvenær framkvæmdir geti hafist.

Næstu skref séu að ljúka við gerð samninga, teikna upp nýtt deiliskipulag svæðisins og undirbúa framkvæmdir með niðurrifi, flutningi á núverandi starfsemi og uppbyggingu frekari innviða á svæðinu.

Hér má sjá stærð fyrirhugaðs hátæknivinnsluhúss á Patreksfirði.
ARNARLAX

Þá þurfi jafnframt að skoða hvernig núverandi innviðir félagsins á Bíldudal nýtist nærsamfélaginu og fyrirtækinu sem best til áframhaldandi uppbyggingar.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að eldra húsnæði Straumness, sem stendur á lóðinni, verði rifið og móttökusvæði fyrir úrgang verði flutt.

Gert er ráð fyrir uppbyggingu stórskipakants við Patrekshöfn, uppsetningu biðkvía við höfnina, auk þess sem gerður verði langtímasamningur um greiðslur til sveitarfélagsins í formi aflagjalda.

Í viljayfirlýsingunni er einnig mælt fyrir um að gert verði samkomulag um uppgjör og greiðslu á útistandandi kröfum vegna aflagjalda, sem hafa verið til meðferðar fyrir Héraðsdómi Vestfjarða að undanförnu.

Heimild: Visir.is