Home Fréttir Í fréttum 25.05.2022 Íþróttamiðstöðin Klébergsskóla – Endurnýjun þaks

25.05.2022 Íþróttamiðstöðin Klébergsskóla – Endurnýjun þaks

137
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Íþróttamiðstöðin Klébergsskóla – Endurnýjun þaks, útboð nr. 15535

Um er að ræða um 900 m2 af þakfleti sem eru á íþróttamiðstöðinni. Endurnýja á þökum; báruál, áfellur, vatnsvarnarlög, borðaklæðningu þar sem við á, bæta við einangrun, laga rakavarnarlag og fl.

Á þökum er litað bárujárn og PVC dúkur. Skipta á bárujárni fyrir báruál ásamt áfellum, rennum og niðurföllum. PVC dúkur (ásamt fyllti) verðu endurnýjaður. Breyttur þakkantur.

Lokaskiladagur verksins er  31. ágúst 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13.00 þann 10. maí  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 25. maí 2022.