Rangárþing ytra byggir viðbyggingu við Grunnskólann á Hellu sem er 1. áfangi uppbyggingar skólasvæðisins. Byggingin er 530 m2 úr forsteyptum einingum og með holplötum á þaki.
Óskað er eftir verðum í frágang utanhúss, glugga, hurðir, álklæðningar ásamt frágangi á þaki. Einnig er um að ræða fullnaðarfrágangi innanhúss; innréttingar, lagnir, loftræsing og raflagnir.
Helstu stærðir eru:
Grunnflötur viðbyggingar 530m²
Frágangur útveggja 140m²
Þakfrágangur 530m²
Innréttingar 19 stk
Loftaklæðningar 420m²
Gólfefni 400m²
Léttir veggir 140m²
Verktaki fær afhenta reista byggingu með steyptu þaki.
Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti með því að senda tölvupóst á tomas@ry.is eða með því að sækja á meðfylgjandi hlekk frá og með 20. Apríl 2022
Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 10.00 þann 10. maí 2022 í lokuðu umslagi í afgreiðslu Rangárþings ytra að Suðurlandsvegi 1-3 og verða tilboðin opnuð þá að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.