Home Fréttir Í fréttum 04.05.2022 Vörðuskóli – Endurnýjun þak og glugga 2022

04.05.2022 Vörðuskóli – Endurnýjun þak og glugga 2022

428
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Vörðuskóli – Endurnýjun þak og glugga 2022, útboð 15491

Vörðuskóli stendur við Barónsstíg 34, 101 Reykjavík. Húsnæðið sem lagfæra á er byggt árið 1947 skv. Þjóðskrá Íslands.

Endurnýja á þak aðalhúss og klæða með læstri þakklæðningu. Alla glugga og þakgluggavirki sem er yfir hátíðarsal skólans. Endurnýjun á hluta af loftræstikerfi og raflögnum í þakvirki. Húsið er steinsteypt  og útveggir steinaðir og einangraðir að innan. Gluggar eru hefðbundnir timburgluggar og útihurðar úr harðvið.

Helstu magntölur Ein. Magn
Rif á þökum aðalbyggingar

Rif og endurnýjun glugga (201 stk)

Þakgluggar (90×185 cm)

m2

m2

stk

850

510

24

Læst zink þakklæðning og tilh.frágangur

Þaksperrur og stólaðar grindur

m2

lm

850

1180

Glerloft í hátíðarsal m2 129
Endurnýjun lampa fyrir ofan glerloft

Loftræsistokkar í þakrými

Stk

lm

 

23

103

Verklok: 15. desember 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, 12. apríl 2022.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef  Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30, 3. maí 2022.