Home Fréttir Í fréttum Húsnæði Garðheima verður rifið en byggt verður á nýjum stað

Húsnæði Garðheima verður rifið en byggt verður á nýjum stað

328
0
Garðheimafjölskyldan, foreldrar og börnin þeirra. Frá vinstri, Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri. Olga Björney Gísladóttir, innkaupastjóri, Sigurður Björn Gíslason, rekstrarstjóri, Jónína Sigríður Lárusdóttir, stofnandi Garðheima, Gísli Hinrik Sigurðsson, stofnandi Garðheima og Jóna Björk Gísladóttir, markaðsstjóri. AÐSEND

Nýlega rann upp langþráður dagur hjá Garðheimafjölskyldunni þegar fyrsta skóflustungan að nýjum höfuðstöðvum Garðheima var tekin við Álfabakka 6 í Reykjavík.

<>

„Já, við höfum fengið frábæra samstarfsaðila með okkur í vegferðina og erum við sannfærð um að úr verði ein fallegasta garðyrkjumiðstöð, sem reist hefur verið.

Hönnun hússins hefur verið í höndum PK arkitekta, Ferils verkfræðistofu, Landslags, Hafstudio og hollenska fyrirtækisins Smiemans, en þeir sérhæfa sig í byggingu garðyrkjumiðstöðva út um allan heim.

Um er að ræða 7000 fm stálgrindarhús ásamt útisölusvæði á 20.000 fm lóð sem liggur við rætur Seljahverfisins og niður að Reykjanesbrautinni,“ segir Jóna Björk Gísladóttir, markaðsstjóri Garðheima.

Tveggja milljarða króna framkvæmd

Garðheimar voru stofnaðir árið 1999 af Gísla Hinrik Sigurðssyni og Jónínu Sigríði Lárusdóttur. Í dag hafa börn þeirra, Sigurður Björn, Kristín Helga, Olga Björney og Jóna Björk Gíslabörn tekið við rekstrinum og starfa þar öll saman undir stjórn Kristínar Helgu Gísladóttur, framkvæmdastjóra. Um 60 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu í dag.

Það var vel tekið á því við moksturinn þegar fyrstu skóflustungurnar voru teknar af nýju húsinu. Frá vinstri, Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri, Hinrik Örn Davíðsson, vaktstjóri og barnabarn Gísla og Jónínu, Gísli Hinrik Sigurðsson, stofnandi Garðheima, Matthías Jörvi Jensson, barnabarn Gísla og Jónínu og framtíðar starfsmaður Garðheima og Valdimar Jaki Jensson, sem er líka barnabarn Gísla og Jónínu og framtíðar starfsmaður fyrirtækisins.
AÐSEND

Kostnaður við nýja Garðheima verður um tveir milljarðar króna. Reiknað er með að opnað verði á nýja staðnum vorið 2023. Hagar eiga lóðina og núverandi húsnæði Garðheima, sem og lóðirnar í kring.

Þeir hyggjast byggja íbúðablokkir og verslunarhúsnæði í bland á öllum reitnum. Núverandi húsnæði Garðheima verður því rifið.

Svona mun nýja húsnæði við Álfabakka 6 líta út. Mikið hefur verið lagt upp úr því að gera húsið eins umhverfisvænt og kostur er. Á lóðinni verða blágrænar ofanvatnslausnir, grasþak yfir hluta hússins, vökvunarkerfi, sem safnar regnvatni til að vökva plöntur í sölu, o.s.frv.
AÐSEND

Heimild: Visir.is