Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í verkið „Borgarfjörður eystri – dýpkun 2022“.
Helstu verkþættir eru:
Fjarlægja skal Sýslumannsboða innan Borgarfjarðarhafnar ásamt frekari dýpkun innan Borgarfjarðarhafnar. Um er að ræða fastan botn á öllu svæðinu, heildarmagn dýpkunarefnis er um 1.850 m3 á um 1.250 m3 svæði.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 16. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.