Home Fréttir Í fréttum 15 milljarða framkvæmd á Ártúnshöfða

15 milljarða framkvæmd á Ártúnshöfða

332
0
Mynd: Reykjavíkurborg

300 svansvottaðar íbúðir munu rísa á Ártúnshöfða, en stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar verði afhentar á fyrsta ársfjórðungi 2024.

<>

Þorpið vistfélag og Upprisa byggingafélag hafa gert með sér samning um byggingu um 300 svansvottaðra íbúða sem fyrsta áfanga í uppbyggingu Þorpsins á Ártúnshöfða. Þetta kemur fram í tilkynningu. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í vor og að fyrstu íbúðir verði afhentar á fyrsta ársfjórðungi 2024.

Í fyrsta hluta þessa áfanga verða byggðar 55 íbúðir í 4-6 hæða húsum. Alls mun Þorpið standa fyrir byggingu á um þúsund íbúðum á Ártúnshöfða sem verða seldar á næstu 2-5 árum. Í heild er um að ræða byggingarrétt á 80.000 fermetrum ofanjarðar svo hér er um að ræða eitt stærsta íbúðaverkefni síðari tíma á höfuðborgarsvæðinu.

Heildarframkvæmdakostnaður er áætlaður um fimmtán milljarðar króna. Um er að ræða þrjá íbúða- og atvinnuhúsnæðiskjarna þar sem áhersla er lögð á vistvænt grænt þéttbýli en íbúðirnar verða allar svansvottaðar og munu því fullnægja skilyrðum um græna fjármögnun fyrir kaupendur.

Þorpið stefnir að byggingu mismunandi íbúða til þess að tryggja félagslega blöndun og fjölbreytilegt samfélag. Auk íbúða sem seldar verða á almennum markaði er stefnt að því að tryggja ungu fólki og fyrstu kaupendum hluta íbúðanna á viðráðanlegu verði, annar hluti verði hugsaður fyrir aldraða auk þess sem hluti íbúða verði í eigu leigufélags. Á jarðhæðum er gert ráð fyrir verslunum, kaffihúsum- og þjónustustarfsemi meðfram væntanlegri Borgarlínu og við Krossamýratorg.

Íbúðirnar liggja að endastöð fyrsta áfanga Borgarlínu við Krossamýratorg. Auk þess er heimild er fyrir allt að 250 bílastæðum neðanjarðar á svæðinu.

Lögð verður áhersla á vistvænar götur, græn svæði, leiksvæði og gott aðgengi fyrir gangandi og hjólandi. Með svansvottun eru gerðar eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í bygginga- og efnavöru, áhersla er lögð á góða loftræstingu og hljóðvist, orkunotkun sé hagkvæm og gæðastjórnun sé tryggð í byggingarferlinu. Einnig er gert ráð fyrir rekstrar- og viðhaldsáætlun fyrir byggingarnar.

Óli Valur Steindórsson, stjórnarformaður Upprisu:

„Þetta er skemmtilegt og spennandi verkefni og við hjá Upprisu erum þakklát fyrir traustið og hlökkum til þátttöku í uppbyggingu nýs hverfis í Reykjavík á nýjan hátt með vistvænum vottuðum byggingum.”

Heimild: Vb.is