Home Fréttir Í fréttum 14.03.2022 Sveitarfélagið Árborg „Stígar í Árborg 2022“

14.03.2022 Sveitarfélagið Árborg „Stígar í Árborg 2022“

392
0
Mynd: Sveitarfélagið Árborg.

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í :

<>

„Stígar í Árborg 2022“

Verkið felur í sér malbikun, gerð burðarlags og jarðvegsskipti og einnig uppsetningu ljósastaura,lampa, snjallbúnaðar fyrir lýsingu ásamt plægingu götuljósastrengs þar sem það á við á stígum í Árborg.

Helstu magntölur eru:

Gröftur                                                                           650 m³

Jöfnun og þjöppun á fyllingu                                          9.200 m²

Styrktarlag                                                                 6.300  m³

Burðarlag, efni                                                          1.000   m³

Burðarlag, útjöfnun og  þjöppun                                10.000  m³

Malbik   Y8                                                                 8.100 m²

Uppsetning ljósastaura  og lampa                                   24  stk

Plæging á ljósastaurastreng                                         1.500 m

Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2022.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

https://arborg.ajoursystem.is/Tender/DirectLink/9cb2df10-6e25-48f9-9d50-7fe114534e62

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru bjóðendur hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

 

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 daginn 14. mars 2022.

 

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar