Home Fréttir Í fréttum Verktökum gengur illa að skila verkum á réttum tíma

Verktökum gengur illa að skila verkum á réttum tíma

166
0
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Árborg. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Það gengur verra og verr fyrir verktaka að skila verkum á réttum tíma, sem veldur miklum vandræðum eins og í Sveitarfélaginu Árborg. Bæjarstjórinn segir að gríðarlegur vöxtur verði á Árborgarsvæðinu og víðar á Suðurlandi næstu tuttugu til þrjátíu árin.

<>

Nýjustu spár gera fyrir allt að fimmtán prósent íbúafjölgun bara á Selfossi á þessu ári, sem samsvarar tæplega tvö þúsund nýjum íbúum.

Gísli segir að síðustu tvö ár hafi gengið verr og verr fyrir verktaka að skila verkum á réttum tíma, sem komi sér illa fyrir sveitarfélag eins og Árborg.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

„Það er þannig að það eru gríðarleg uppbyggingar áform á meðal landeigenda og verktaka á Selfossi og þau hafa tafist núna undanfarin ár vegna Covid og af öðrum ástæðum, skipulagstengdum, fjármögnunaraðstæðum og öðru,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Árborg.

Mjög, mjög mikið er byggt á Selfossi og í sveitarfélögunum í kring. Hér eru nýjustu blokkirnar, sem Pálmatré er að byggja. Flutt var í aðra þeirra í desember 2021. Blokkirnar eru á Selfossi, báðar sex hæða.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Í dag búa um 9.300 íbúar á Selfossi og í allri Árborg eru íbúarnir rétt tæplega 11 þúsund. Menn hafa aldrei séð eins mikla uppbyggingu í sveitarfélaginu eins og síðustu ár og þar verðist ekkert lát vera á.

„Ég held að það sé alveg einsýnt og menn geta séð það ef þeir horfa á þróunina, jafnvel frá stríðslokum og ekki síst á þessari öld að það verður gríðarlegur vöxtur hérna á Árborgarsvæðinu og á Suðurlandi minnsta kosti næstu tuttugu eða þrjátíu árin,“ segir Gísli Halldór.

Stekkjaskóli er nýjasti skólinn, sem er nú verið að byggja á Selfossi.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Gísli segir að það geti fylgt því miklir vaxtarverkir þegar sveitarfélög eins og Árborg stækka svona hratt eins og raun ber vitni enda meira en brjálað að gera, sem sjá um að byggja öll nýju húsinu.

„Síðan hefur það verið reyndin núna síðustu tvö ár að það hefur gengið verr og verr fyrir verktaka að skila verkum á réttum tíma. Þetta er að valda okkur ákveðnum vandræðum í að hýsa öll þessi ungmenni, sem þurfa að vera í skólunum okkar þannig að jú, það fylgja þessu vissulega verkir en það eru engin verkefni svo erfið að maður finni á þeim lausn,“ segir Gísli Halldór, bæjarstjóri.

Heimild: Visir.is