Home Fréttir Í fréttum 10.03.2022 Akureyrarbær: Steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag 2022-2024

10.03.2022 Akureyrarbær: Steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag 2022-2024

141
0
Mynd: Akureyri.is

Útboð á steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag 2022-2024

<>

Umhverfis- og mannvirkjasvið, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag fyrir árin 2022-2024 með möguleika á framlengingu árið 2025. Heildarmagn er um 18.000 tonn fyrir árið 2022.

Helstu magntölur:
Grófur sandur            0-11 mm 500 tonn
Salli                          0-8 mm 4.300 tonn
Perla                         8-11 mm 900 tonn
Perla                         11-16 mm 500 tonn
Jöfnunarlagsefni          0-22 3.700 tonn
Jöfnunarlagsefni          0-63 2.200 tonn
Yfirborðsefni (salli)      0-2 mm 800 tonn
Mölun malbiksafganga  5.000 m³

Útboðið er boðið út á EES svæðinu og er tungumál útboðsins íslenska.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 8. febrúar 2022

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 10:00 fimmtudaginn 10. mars 2022 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.