Home Fréttir Í fréttum Stækkuðu draumahúsið í Hafnarfirði sautján árum eftir kaupin

Stækkuðu draumahúsið í Hafnarfirði sautján árum eftir kaupin

172
0
María Krista ætlaði sér að kaupa húsið frá tíu ára aldri. Samansett mynd: Visir.is

María Krista Heiðarsdóttir er þekkt fyrir gómsætar uppskriftir og girnilega ketó rétti sem slegið hafa í gegn hjá landanum.

<>

Undanfarið hefur María leyft fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast með framkvæmdum á húsi þeirra hjóna sem þau eru að taka í gegn frá a til ö með skemmtilegum leiðum og kíkti Eva Laufey Kjaran í heimsókn til hennar nú á dögunum og fékk að fylgjast með því sem er í gangi á Brúsastöðum.

„Við keyptum þetta hús fyrir átján árum síðan af ættingjum þeirra sem byggðu þetta hús árið 1961. Þetta er byggt á fjölskyldulóð og við erum svona í jaðrinum á Hafnarfirðinum.

Við keyptum þetta eins og húsið var og það var orðið svona smá barns síns tíma. Við gerðum ekki neitt í sautján er en núna var komin tíma til að breyta því,“ segir María sem sá húsið fyrst þegar hún var tíu ára og hugsaði strax þá að hún ætlaði sér að eignast það einn daginn.

„Börnin fóru að heima og loksins fengum við tíma til að gera eitthvað við húsið og við stækkuðum það. Okkur langaði í betra útsýni. Þetta er frábær staður og okkur vantaði bara glugga,“ segir María en þau hjónin fengu leyfi til þess að rífa efri hæðina af húsinu og reisa nýja og stærri hæð.

„Þetta er friðað svæði og við gerðum þetta eins smekklega og hægt var og því vildum við halda í það gamla sem var allt í lagi með,“ segir María en viðbyggingin er úr sérstökum einingum og var hún í raun púsluð saman. María líkir verkefninu við að reisa piparkökuhús.

„Þetta gerðist í raun á þremur eða fjórum dögum að koma þessu saman. Og þegar þetta var komið upp gátum við byrjað að klæða húsið,“ segir María en þau hjónin eru ekki alveg búin með verkefnið en komin langt.

Heimild: Visir.is