Home Fréttir Í fréttum 21.02.2022 Dúkalagnir 2022 í hverfum 6,7 og 8,9,10 í fasteignum Reykjavíkurborgar

21.02.2022 Dúkalagnir 2022 í hverfum 6,7 og 8,9,10 í fasteignum Reykjavíkurborgar

181
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

15407 Dúkalagnir 2022 í hverfum 6,7 og 8,9,10 í fasteignum Reykjavíkurborgar

Verk þetta felst í dúkalögn í 20 fasteignum Reykjavíkurborgar. Um er að ræða rif og dúklagningu linoleumdúka og vinyldúka.

Fasteignirnar eru: Fellaskóli, Árbæjarskóli, Ártúnsskóli Kvarnarborg og Ártúnsskóli, Bakkaborg, Hólabrekkuskóli, Norðlingaskóli, Selásskóli, Ölduselsskóli, Blásalir, Jöklaborg, Suðurborg, Klettaborg, Lyngheimar, Bakkaberg Berg, Fífuborg, Engjaborg, Maríuborg, Sunnufold Frosti, Brekkuborg, Fólkvangur.

Helstu magntölur eru: 
Linóleumdúkar:       3.300 m2
Vinyldúkar:                  470 m2

Lokaskiladagur verksins er  31. desember 2021.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 31. janúar 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 21. febrúar 2022