Home Fréttir Í fréttum 21.02.2022 Múrverk 2022 í hverfum 6,7 og 8,9,10 í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar

21.02.2022 Múrverk 2022 í hverfum 6,7 og 8,9,10 í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar

115
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

15408 Múrverk 2022 í hverfum 6,7 og 8,9,10 í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar

Um er að ræða múrverk í fasteignum Reykjavíkurborgar

Fasteignirnar eru: Íþróttahús Leiknis við Austurberg, Ártúnsskóli, Ártúnsskóli Kvarnaborg, Selásskóli, Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, Ölduselsskóli sundlaug, Korpúlfsstaðir, Sundmiðstöð Grafarvogs (Grafarvogslaug).

Um er að ræða múrverk í fasteignum Reykjavíkurborgar

Lokaskiladagur verksins er  31. desember 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 31. janúar 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:30 þann 21. febrúar 2022.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is