Home Fréttir Í fréttum 03.02.2022 Bláskógabyggð. Laugarvatn-Hverabraut

03.02.2022 Bláskógabyggð. Laugarvatn-Hverabraut

449
0

Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:

<>

Laugarvatn-Hverabraut

Verklok eru 15.05.2022

Verkið felur í sér lagningu botnlanga og vatns- og fráveitu við Hverabraut á Laugarvatni.  Grafa skal fyrir burðarlagi og vatns- og fráveitulögnum og leggja samanber útboðslýsingu.

Helstu magntölur eru:

Gröftur á lausu efni, brottekið                                        500 m³

Gröftur á lausu efni útjafnað við vinnusvæði                   500 m³

Fylling undir og yfir                                                      150 m³

Vatnsveitulagnir                                                           400 m

Fráveitulagnir                                                               250 m

Styrktarlag Hverabrautar og göngustígs                         790 m³

 

Útboðsgögn eru afhent á rafrænu formi.  Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu Suðurlandi með því að senda  tölvupóst á netfangið ba@efla.is  og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 3. febrúar og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

F.h. Bláskógabyggðar

Kristófer Tómasson sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs