Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Sundabakki dýpkun og uppdælingu efnis

Opnun útboðs: Sundabakki dýpkun og uppdælingu efnis

284
0

Tilboð voru opnuð 16. desember í dýpkun Sundahafnar og uppdælingu efnis.

<>

Hluti af efninu sem verður dælt upp fer í landfyllinguna sem áætluð er innan við Langeyri í Álftafirði, undir kalkþörungaverksmiðjuna og hafnargerð, um 80-100.000 rúmmetrar.

Því er hlutur Súðavíkurhrepps í framkvæmdinni um fjórðungur af heildarupphæðinni.

Alls bárust 7 tilboð og var Björgun ehf í Mosfellsbæ lægst með 437 m.kr. tilboð sem er 17,6% yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.

Hæsta tilboðið var 1.127 m.kr. og kom frá Belgíu. Sex tilboðanna voru frá erlendum aðilum.

Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur til að samið verði við lægstbjóðanda.

Heimild: BB.is