Home Fréttir Í fréttum Úti­lokar ekki laga­setningu til að greiða leið línunnar

Úti­lokar ekki laga­setningu til að greiða leið línunnar

113
0
Sigurður Ingi segir tíðindin frá Vogum mikil vonbrigði. Mynd: STÖÐ 2

Innviðaráðherra útilokar ekki að gripið verði til lagasetningar svo hægt verði að leggja Suðurnesjalínu 2. Vogar stendur eitt sveitarfélaga á Suðurnesjum í vegi fyrir því að framkvæmdir geti hafist.

<>

Sveitarfélagið Vogar samþykkti í síðustu viku tillögu að nýju aðalskipulagi þar sem útilokað er að hægt verði að leggja Suðurnesjalínu 2 sem loftlínu.

Vogar vilja jarðstreng en Landsnet loftlínu og hafa hin sveitarfélögin sem koma að málinu þegar veitt leyfi fyrir því.

„Það eru náttúrulega mjög mikil vonbrigði þetta útspil, einfaldlega vegna þess að það er mjög brýnt að koma þessari framkvæmd í gang,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets.

Raforkuóöryggi á Suðurnesjunum standi til dæmis í vegi fyrir uppbyggingu á svæðinu.

Landsnet segist ekki hafa nein tól í höndunum til að bregðast við.

Viltu að stjórnvöld fari bráðlega að grípa í taumana svo það verði hreinlega hægt að hefja þessa framkvæmd?

„Við erum engir sérstakir talsmenn þess að stjórnvöld grípi inn í en ég held að allir hugsandi menn þurfi að horfa á það að þarna er eitthvað ferli sem er ekki sjálfgefið að fái niðurstöðu. Og auðvitað þarf að bregðast við því,“ segir Guðmundur Ingi.

Guðmundur Ingi Ásmundsson, formaður Landsnets.
Mynd: VÍSIR/EGILL
Óheppilegt að eitt sveitarfélag geti stoppað framkvæmdina

Og ráðherra útilokar ekki að ríkið stígi inn í málið með lagasetningu.

„Það verður auðvitað að vera hægt að gera hlutina. Það er ekki nóg að hafa einhverja stefnu um það, sérstaklega ekki þegar það er orkuskortur á svæðinu og orkuöryggi fólks þar af leiðandi ekki fullnægt,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu-, sveitarstjórnar- og innviðaráðherra.

Hann er á því að málið sé orðið allt of langt en ferlið við að koma á annarri flutningslínu raforku til Suðurnesja hófst fyrir tveimur áratugum.

„Þetta er afleitt. Og ég hef bent á það í mörgum öðrum tilvikum að þá er það mjög óheppilegt að einstök sveitarfélög á sama svæði geti ekki orðið sammála um það og þar af leiðandi komið í veg fyrir að framkvæmdir sem eru í þágu samfélagsins alls verði að veruleika,“ segir Sigurður Ingi.

Breytingarnar á aðalskipulagi Voga stangast ekki aðeins á við kerfisáætlun Landsnets heldur einnig gildandi svæðisskipulag á Suðurnesjum.

„Það eru auðvitað ákveðin vonbrigði ef ég á að segja alveg eins og er ef að sveitarstjórn Voga ætlar að fara einhverja sérstaka vegferð að fara gegn gildandi svæðisskipulagi,“ segir ráðherrann.

Heimild: Visir.is