Home Í fréttum Niðurstöður útboða Eina tilboðinu hafnað tilboð í fyrsta áfanga viðbyggingar við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit

Eina tilboðinu hafnað tilboð í fyrsta áfanga viðbyggingar við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit

334
0
Hrafnagilsskóli viðbygging

Einungis eitt tilboð barst í verkefni við fyrsta áfanga viðbyggingar við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit sem boðið var út nýverið.

<>

Áfanginn fól í sér vinnu við sökkla, botnplötu og innfyllingar. Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 74 milljónir króna.

Tilboð sem barst í þetta verkefni kom frá fyrirtækinu B. Hreiðarsson og var upp á tæplega 109 milljónir króna eða 47% yfir áætluðum kostnaði.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar ákvað að hafna tilboðinu. Eins var tekin um það ákvörðun á fundi sveitarstjórnar að endurskoða forsendur útboðsins og bjóða verkið út aftur á nýju ári.

Heimild: Vikudagur.is