Vestmannaeyjahöfn óskar eftir tilboðum í verkið: Vestmannaeyjahöfn: Skipalyftukantur, raforkuvirki 2021.
Helstu verkþættir eru:
· Smíða rafmagnstöflu
· Draga strengi í ídráttarrör
· Ganga frá tenglum í bryggjuskápum
· Setja upp ljóskastara og neyðarljós í stigum
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31.júlí 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. desember 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. desember 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.