Home Fréttir Í fréttum Stóraukinn hagnaður Múrbúðarinnar

Stóraukinn hagnaður Múrbúðarinnar

408
0
Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson Birgir Ísl. Gunnarsson

Hagnaður byggingavöruverslunarinnar nam 123 milljónum króna á síðasta ári og jókst um 262% frá fyrra ári.

<>

Múrbúðin hagnaðist um 123 milljónir króna á síðasta ári og jókst hagnaður um 262% frá fyrra ári.

Rekstrartekjur námu 1,4 milljörðum og jukust um 31% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður nam 178 milljónum og ríflega þrefaldaðist.

Eignir námu 591 milljón og eigið fé 225 milljónum í lok síðasta árs. Múrbúðin er í eigu MBKF ehf.. Fjárfestingafélag Árna Haukssonar og hjónanna Hallbjörns Karlssonar og Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur.

Vogabakki varð meirihlutaeigandi félagsins í fyrra þegar það jók hlut sinn úr 43% í 58%.

Heimild: Vb.is