Home Fréttir Í fréttum 10.12.2021 Safamýri 5 nýr leikskóli – Endurbætur, fullnaðarfrágangur og lóðarframkvæmd

10.12.2021 Safamýri 5 nýr leikskóli – Endurbætur, fullnaðarfrágangur og lóðarframkvæmd

385
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk

<>

Safamýri 5 nýr leikskóli – Endurbætur, fullnaðarfrágangur og lóðarframkvæmd útboð nr 15350

Yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í uppbyggingu, fullnaðar- og lóðarfrágangi á fyrirhuguðum leikskóla í Safamýri 5, Reykjavík. Byggingin var byggð árið 1961 og er hér um endurnýjun húsnæðisins að ræða. Aðeins matshluti 01 er undir í þessum áfanga.

Matshluti 02 er nýrri og verður endurnýjaður í kjölfarið. Matshlutarnir eru tengdir með tengibyggingu og skiptist hún á milli þeirra. Tengibyggingin verður endurnýjuð í þessum áfanga. Byggingin er á einni hæð, 2,7 til 4,9 metrar á hæð. Heildarstærð húsnæðis er 654,0 m2.

Helstu verkþættir eru:

  • Uppbygging og fullnaðarfrágangur húsnæðis
  • Endurnýjun gluggakerfis
  • Lagning raf-, loftræsti og lagnakerfa
  • Fullnaðarfrágangur lóðar

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 17. nóvember  2021.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. desember 2021.