Home Fréttir Í fréttum Kaupa 97 fermetra fyrir 45,4 milljónir

Kaupa 97 fermetra fyrir 45,4 milljónir

142
0
Mynd: Haraldur Guðjónsson

Fjöldi fyrstu kaupenda hafa verið yfir 1500 síðustu fimm ársfjórðunga. Að jafnaði greiddu þeir 45,4 milljónir fyrir 97 fm íbúð.

<>

Fjöldi fyrstu kaupenda á íbúðamarkaði á þriðja ársfjórðungi voru 1.562 talsins, sem samsvarar um þriðjungi kaupenda á íbúðamarkaði.

Að meðaltali greiddu fyrstu kaupendur 45,4 milljónir króna fyrir 96,9 fermetra íbúð, eða sem nemur 469 þúsund krónum á hvern fermetra. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.

„Í dag greiða fyrstu kaupendur að meðaltali 4 milljónum króna meira fyrir sína fyrstu íbúð en fyrir ári síðan, en meðalkaupverð hefur hækkað úr 41,4 í 45,4 milljónir króna.

Á síðastliðnum ársfjórðungi var hækkunin um 700 þúsund krónur.
Mest greiða kaupendur fyrir sína fyrstu eign á höfuðborgarsvæðinu, um 51,5 milljónir króna fyrir 91,8 fermetra íbúð.

Til samanburðar er hagkvæmasta verðið á Austurlandi þar sem fyrstu kaupendur greiða að meðaltali 28 milljónir króna fyrir 140 fermetra íbúð,“ segir í frétt Þjóðskrár.

Á 3. ársfjórðungi hafi hlutfall fyrstu kaupenda verið lægst á Norðurlandi vestra eða um 25% allra kaupenda. Hæst hafi hlutfallið verið á Vestfjörðum eða um 45%.

Þó þurfi að hafa í huga að nokkuð fáir samningar geti verið að baki viðskiptum einstakra landshluta á hverjum ársfjórðungi.

Fjöldi fyrstu kaupenda hafi verið yfir 1500 frá þriðja ársfjórðungi 2020 en fjöldi fyrstu kaupenda hafi áður hæst farið í 1427 á öðrum ársfjórðungi 2007.

Heimild: Vb.is