Home Fréttir Í fréttum 16.11.2021 Neskaupsstaður og Eskifjörður, sjóvarnir 2021

16.11.2021 Neskaupsstaður og Eskifjörður, sjóvarnir 2021

171
0
Neskaupstaður. Mynd: Austurfrétt.is

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á Neskaupsstað og Eskifirði.

<>

Verkið felst í gerð 250 m langrar sjóvarnar við gamla frystihúsið á Neskaupsstað og Endurbyggingu sjóvarnar við Strandgötu á Eskifirði á um 95 m kafla.

Helstu magntölur:

  • Heildarmagn af grjóti og sprengdum kjarna um 3.900 m3
  • Upptekt og endurröðun grjóts um 300 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. júní 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 3. nóvember 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  16. nóvember 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.