Home Fréttir Í fréttum Keppast við vegabætur áður en holskefla ferðamanna ríður yfir

Keppast við vegabætur áður en holskefla ferðamanna ríður yfir

83
0
Mynd: BORGARVERK/EINAR ÖRN ARNARSON

Vestfirðingar gleðjast yfir því í dag að ferðabókaútgefandinn Lonely Planet hafi sett fjórðunginn í efsta sæti yfir þau svæði heims sem best sé að heimsækja á næsta ári.

<>

Ferðamanna bíða hins vegar holóttir malarvegir og einbreiðar brýr fyrir vestan og það stefnir í bið eftir næsta áfanga á Dynjandisheiði.

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá magnað útsýnið af þjóðveginum um Dynjandisheiði en Vestfjarðastofa og Íslandsstofa segja að val Lonely Planet muni beina kastljósi heimsbyggðarinnar að Vestfjörðum. En eru vestfirskir vegir tilbúnir að mæta svona auglýsingu?

Sigurþór Guðmundsson er verkefnastjóri Vegagerðarinnar á Dynjandisheiði og í Gufudalssveit.
STÖÐ 2/EGILL AÐALSTEINSSON

„Ja.. – það er náttúrlega alltaf spurning hvað er tilbúið. Við stefnum allavega eins hratt og við mögulega getum að gera þetta þannig að það verði nóg að gera á Vestfjörðum í ferðamennsku,“ svarar Sigurþór Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni í Dynjandisheiði og Gufudalssveit.

Og það hyllir undir næstu vegabætur. Í dag hófu starfsmenn Borgarverks að leggja bundið slitlag á fimm kílómetra kafla í Arnarfirði milli Mjólkár og Dynjanda og vonast til að ljúka klæðningunni um hádegisbil á morgun.

Stefnt er síðan á að opna kaflann umferð eftir helgi, samkvæmt upplýsingum Einars Arnarsonar, sviðsstjóra klæðningar hjá Borgarverki.

Í Mjólkárhlíð í Arnarfirði færist vegurinn úr fjallshlíðinni niður undir fjöruborð.
BORGARVERK/EINAR ÖRN ARNARSON

Þá vinna starfsmenn ÍAV í átta kílómetra kafla upp úr Vatnsfirði að gatnamótum Bíldudalsvegar og stefnt að því opna hluta hans í næsta mánuði. Það ræðst þó af veðri hvort næst að leggja á hann slitlag fyrir veturinn.

„Þar erum við vel á undan fjáráætlun og höfum reynt að vinna það eins hratt og vel og við getum.

Við verðum að vinna þar líklega í allan vetur og fram á næsta vor, ef veður leyfir, og svo erum við búnir að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir næsta kafla.“

Frá þjóðveginum um Dynjandisheiði. Myndin var tekin í síðasta mánuði.
STÖÐ 2/ARNAR HALLDÓRSSON

Sá kafli er tólf kílómetra langur efst á Dynjandisheiði. Það er hins vera óvíst hvenær hægt verður að bjóða hann út.

„Miðað við samgönguáætlun þá er ekki fé í verkefnið akkúrat núna. Það kemur mest inn 2023 og 2024.“

-Þannig að óbreyttu verður ekki hægt að bjóða þetta út og hefjast handa fyrr en 2023?

„Nei, ég vil ekki segja að það sé þannig. Það bara.. við erum að gera allt klárt og viljum komast áfram. En það verður að koma í ljós,“ svarar Sigurþór.

Heimild: Visir.is