Home Fréttir Í fréttum Iðnaðar­menn vilja festa Allir vinna í sessi

Iðnaðar­menn vilja festa Allir vinna í sessi

48
0
Hilmar Harðarson,

Samiðn, samband iðnfélaga, hefur hvatt stjórnvöld til að tryggja að átakið Allir vinna verði fest varanlega í sessi.

<>

Stjórnvöld útvíkkuðu átakið í kórónuveirufaraldrinum og felst það í endurgreiðslu á virðisaukaskatti vinnuliðs þegar kemur að ýmsum framkvæmdum. Átakið mun að óbreyttu renna sitt skeið um áramót.

Iðnaðarmenn hvetja til þessa í ályktun miðstjórnarfunds Samiðnaðar, en stjórnvöld ákváðu á vordögum 2020 að hækka endurgreiðsluhlutfallið á virðisaukaskattinum úr 60 prósent í 100 prósent.

Í tilkynningu frá Samiðn segir að aðgerðirnar hafi heppnast vel og nemi endurgreiðslurnar fyrir janúar til ágúst á þessu ári samtals 5,9 milljarða króna.

„Átakið stuðlar að mörgum virðisaukandi verkefnum til samfélagsins. Enn fremur skiptir það miklu máli út frá neytendasjónarmiðum.

Samiðn hvetur því stjórnvöld að festa umrædd átak í sessi sem að öllu óbreyttu rennur út um næstkomandi áramót.

Í ályktun Samiðnar kemur fram að það sem skipti almenning mestu máli þegar kemur að störfum iðnaðarmanna séu gæði vinnu þeirra.

Þetta kom fram í könnun sem Ráðhúsið vann fyrir Samiðn í ágúst sl. Eitt það mikilvægasta til að tryggja góð vinnubrögð í iðngreinum er að viðhalda ríkum kröfum sem gerðar eru til þeirra sem hyggjast starfa þar.

Að neytendur geti fullvissað sig um að fá faglega þjónustu frá fagmanni sem þekki til verka hér á landi. Stjórnvöld verða því að tryggja að lögvernduð iðngreina sé tryggð og að ríkur hvati sé til staðar að leita sér iðnmenntunar,“ segir í tilkynningunni.

Náði einnig til bílaviðgerða

Stjórnvöld ákváðu að hækka tímabundið endurgreiðslu virðisaukaskatts, úr 60 prósentum í 100 prósent í því skyni að bregðast við efnahagsástandinu.

Á vef Skattsins segir að endurgreiðslan sé af vinnu manna við íbúðarhúsnæði sem veitt sé á tímabilinu 1. mars 2020 til og með 31. desember 2021.

„Heimild til endurgreiðslu verður jafnframt víðtækari á þessu tímabili en áður og tekur m.a. til frístundahúsnæðis, mannvirkja í eigu tiltekinna félagasamtaka og bílaviðgerða.“

Heimild: Visir.is