Home Fréttir Í fréttum Kaupa á Orkureit fyrir 3,8 milljarða

Kaupa á Orkureit fyrir 3,8 milljarða

177
0
Vinningstillaga um nýtt skipulag á Orkuhúsreitinum frá árinu 2019.

Íslenskar fasteignir kaupa fasteignir og byggingarétt á Orkureit af Reitum fyrir um 3,8 milljarða króna.

<>

Reitir hafa náð samkomulagi við Íslenskar fasteignir ehf. um sölu fasteigna og byggingarréttar á svokölluðum Orkureit fyrir 3,83 milljarðar króna að því er fram kemur í tilkynningu frá Reitum.

„Um er að ræða fasteignina Ármúli 31 ásamt öllum nýbyggingarheimildum á lóðinni í heild í tengslum við nýtt deiliskipulag sem þegar hefur verið auglýst og er nú í úrvinnslu hjá Reykjavíkurborg.

Tekið skal fram að kaupin ná ekki til fasteignarinnar að Suðurlandsbraut 34, þ.e.a.s. gamla Rafmagnsveituhússins,” segir í tilkynningunni.

Áætlaður söluhagnaður Reita er um 1,3 milljarðar króna en á móti mun áætlaður rekstrarhagnaður félagsins lækka um 70 milljónir króna á ársgrundvelli.

Stefnt er að undirritun kaupsamnings og afhending eigi sér stað á fyrsta ársfjórðungi 2022 en samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á hinu selda og gildistöku deiliskipulags.

Með samkomulaginu skuldbinda Reitir sig til samstarfs um hönnun, útfærslu og kaupa um 1.520 fermetra af atvinnuhúsnæði sem byggt verður á lóðinni.

Orkureiturinn er á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og nær upp að Ármúla. Reiturinn liggur við fyrirhugaða Borgarlínu, gegnt útivistarsvæði í Laugardal.

Gert er ráð fyrir að lágreist hús sem standa við Ármúla víki fyrir 3-8 hæða nýbyggingum í borgarmiðuðu skipulagi en gamla Rafmagnsveituhúsið fái „virðingarsess á lóðinni“.

Að hámarki verða 436 íbúðir á reitnum ásamt um 4-6 þúsund fermetrum atvinnuhúsnæði. Hámarksbyggingarmagn skv. nýju deiliskipulagi er rúmlega 44 þúsund fermetrar.

Heimild: Vb.is