
Áframhaldandi samdráttur er í byggingu nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI).
Ekki hafa verið færri íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu síðan í mars 2017.
Nú eru 3.387 íbúðir í byggingu samkvæmt greiningunni, en á sama tíma í fyrra voru íbúðir í byggingu 4.127 talsins. Samdráttur milli ára er því um 18%.
Í greiningunni kemur einnig fram að fullgerðum íbúðum hafi fækkað á milli ára, úr 1.097 íbúðum í 353 íbúðir. Fækkunina megi meðal annars rekja til aukinnar sölu á fullbúnum íbúðum.
„Mikið af þeim íbúðum sem eru nú á síðustu byggingastigum í talningunni eru raunar seldar en íbúð er talin með þar til flutt er inn í hana. Framboð fullbúinna íbúða er því minna en talningin ber með sér,“ segir í tilkynningu SI.
SI áætla að 1.646 íbúðir fari á markað á höfuðborgarsvæðinu árið 2022 og 1.764 árið þar á eftir. Í nágrannasveitarfélögum er gert ráð fyrir 425 íbúðum á markað 2022 og 575 árið 2023.
Spáin er því örlítið bjartsýnni en spá SI frá árinu 2020,en þar var áætlað að 1.923 fullbúnar íbúðir kæmu á markað árið 2022.
Heimild: Visir.is