Home Fréttir Í fréttum Vilja skipta út yfirfullu hringtorgi fyrir betri lausn

Vilja skipta út yfirfullu hringtorgi fyrir betri lausn

80
0
Hér sést hringtorgið á Selfossi sem bæjaryfirvöld vilja skoða breytingar á. Mynd: VÍSIR/ARNAR

Umferðin yfir Ölfusarbrú á Selfossi var það þung í sumar að kalla þurfti til lögreglu til að stýra umferð því bílaröðin hefur náð út í Ölfus. Nú eru uppi hugmyndir að breyta þessum gatnamótum til að greiða úr flöskuhálsinum.

<>

„Aðstæður hérna á föstudegi, og jafnvel fimmtudögum og fleiri dögum vikunnar, eru þannig að það er bílaröð hérna frá hringtorginu og út í Ölfus.

Eyrarvegurinn á annarri hönd og Austurvegurinn á hinni þeir eru fullir líka og allir eru að berjast um að komast inn í þetta hringtorg.

Við höfum meira að segja gripið til þess í sumar þegar mest var að gera að biðja lögregluna að koma hérna og stýra umferð,“ segir Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar Árborgar.

Hringtorgið er ekki að virka sem skyldi. Finna þurfi lausn á vandanum, hugsanlega með ljósastýringu, jafnvel þó ný brú yfir Ölfusá sé á teikniborðinu.

Íbúum Árborgar fjölgar hratt, eru um ellefu þúsund í dag, og sér ekki fyrir endan á þeirri fjölgun.

Miðbær Selfoss hefur einnig tekið breytingum sem mun gera hann að aðdráttarafli, í stað þess að ferðamenn fari beint í gegnum bæinn. Umferðin komi því ekki til með að minnka um þessi gatnamót þó ný brú yfir Ölfusá verði reist.

„Við sjáum fyrir okkur þegar kemur ný brú, að þá snýst þetta ekki bara um að tappa á einhverri umferð sem við viljum ekki fá ef þú ætlar ekki að stoppa. Þetta snýst líka um að greiða umferð heimamanna inn og út úr bænum á tveimur stöðum,“ segir Helgi.

Þetta er ekki einkamál Selfyssinga?

„Nei, langt því frá. Við erum á þjóðvegi 1 og fullt af fólki sem þarf að fara hér í gangi og margir sem pirra sig á því hvað þetta gengur hægt. Þetta er í raun mál allra landsmanna sem vilja ferðast hér um þjóðveg 1.

Heimild: Visir.is