F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Gervigrasvellir Þróttar í Laugardal. Vallarlýsing, útboð nr. 15308
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 15:00 þann 14. september 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 11:00, 30. september 2021.
Lýsing á verkefninu:
Um er að ræða lampabúnað fyrir flóðlýsingu á tveimur æfingavöllum á Þróttarsvæðinu norðan við Laugardalsvöll.
Verkið felst í að útvega, setja upp og prófa flóðlýsingu á tvo nýja æfingavelli með gervigrasi á íþróttasvæði Þróttar í Laugardal.
Gert er ráð fyrir allt að 21m háum ljósamöstrum utan við horn vallanna og fyrir miðju þeirra.