Home Fréttir Í fréttum 29.09.2021 Kirkjusandur – Yfirborðsfrágangur og gatnamót við Borgartún

29.09.2021 Kirkjusandur – Yfirborðsfrágangur og gatnamót við Borgartún

165
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Kirkjusandur – Yfirborðsfrágangur og gatnamót við Borgartún, útboð nr. 15302

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 14. september 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is   Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 29. september 2021.

Lýsing á verkefninu:

Um er að ræða vinnu við gerð gatnamóta Hallgerðargötu við Borgartún ásamt því að ljúka við yfirborðsfrágang sunnan megin við Hallgerðargötu.

Um er að ræða:

  • Jarðvinnu vegna tengingar Hallgerðargötu við Borgartún
  • Frágangur burðarlags og mulnings undir malbik í götum, stéttum og hjólastíga
  • Að koma fyrir niðurföllum við gatnamótin
  • Uppsetningu og færslu götuljósastólpa
  • Malbikun gatna og hjólastíga
  • Að steypa gangstéttar við Borgartún
  • Að helluleggja gangstéttar, upphækkun og innkeyrslur
  • Gerð kantsteina
  • Gerð gróðurbeða og gróðursetning

Helstu magntölur eru:

  • Styrktarlag                                700 m3
  • Burðarlag                                  650 m2
  • Mulningur                              1.000 m2
  • Kantsteinar                             1.200 m
  • Hellulögn                                1.400 m2
  • Malbik                                    1.500 m2
  • Uppsetning ljósastólpa                11 stk.