Home Fréttir Í fréttum Taka nýtt hjúkrunarheimili í notkun eftir fimm ár

Taka nýtt hjúkrunarheimili í notkun eftir fimm ár

61
0
Mynd: Rúv.is/Þór

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, og Einar Freyr Elínarson, starfandi sveitarstjóri í Vík í Mýrdal, skrifuðu í dag undir sameiginlega viljayfirlýsingu um byggingu nýs hjúkrunarheimilis.

<>

Það á að leysa af hólmi þau 15 rými sem fyrir eru á hjúkrunarheimilinu Hjallatúni.

„Núverandi húsnæði er barns síns tíma og er langt frá því að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru um hjúkrunarheimili í dag,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Áætlað er að reisa heimilið á lóð í eigu sveitarfélagsins en gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist eftir tvö ár og að taka megi heimilið í notkun árið 2016.

Í tilkynningunni segir að það sé að því gefnu að Alþingi samþykki verkefnið í fjármálaáætlun.

85 prósent af kostnaði við byggingu hjúkrunarheimilisins á að greiðast úr ríkissjóði en sveitarfélag Mýrdalshrepps greiðir fimmtán prósent.

Heimild: Ruv.is