Home Fréttir Í fréttum Tálknafjarðarvegur – tvö tilboð bárust

Tálknafjarðarvegur – tvö tilboð bárust

206
0
Tálknafjörður. Mynd: BB.is

Vegagerðin auglýst á dögunum í þriðja sinn eftir tilboðum í endurbyggingu vegkaflans ásamt gerð grjótvarnar og lagnavinnu á Tálknafjarðarvegi (617-02) um þéttbýlið á Tálknafirði.

<>

Fyrst barst ekkert tilboð og síðan eitt tilboð sem ekki var tekið vegna þess að það var of hátt.

Nú bárust tvö tilboð :

Þotan ehf., Bolungarvík bauð 267.8 milljónir í verkið og Allt í járnum ehf., Tálknafirði 250.7 milljónir .

Áætlaður verktakakostnaður er.243.219.554 kr

Verkefnið sem er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Tálknafjarðarhrepps ætti því nú að komast til framkvæmda.

Heimild: BB.is