Home Fréttir Í fréttum 28.09.2021 Vetrarþjónusta 2021-2024, Klettháls

28.09.2021 Vetrarþjónusta 2021-2024, Klettháls

143
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og færðargreiningu,  á Vestfjarðavegi (60) um Klettsháls og nálæga þjóðvegakafla.

<>

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.

Helstu magntölur eru:

  • Færðargreining 8.100 km
  • Mokstur með dráttarvél 600 tímar
  • Álag vegna notkunar á snjóblásara 180 tímar

Verklok eru í apríl 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 29. ágúst 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. september 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.